Birnan sem var skotin í maí: Ung að árum og nýfarin frá mömmu 28. júní 2011 14:58 Hvítabjörn Myndin er úr safni
Hvítabjörninn sem var felldur í Rekavík á Hornströndum 2. maí síðastliðinn var ung birna við það að verða kynþroska. Hún var einungis 95 kíló og 173 sentimetrar að lengd. Birnan var búin að vera hér á landi í einhvern tíma áður en hún var skotin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Birnan var skotin tæpum sex klukkustundum eftir að hún sást á vappi í fjörunni í Hælavík og flutt samdægurs til Reykjavíkur þar sem hún var rannsökuð. Samkvæmt skýrslu dýrafræðings á tilraunastöðinni á Keldum var birnan ung að árum og talin vera fædd í janúar 2008. Aldursgreiningin byggir á talningu árhringja á tannrótum. Birnan er talin hafa lotið forsjár móður fram á seinni hluta vetrar 2010 en eftir það hafi hún þurft að finna fótum sínum forráð - ein og óstudd. Í skýrslunni kemur fram að gróflega sé áætlað að fituforði birnunnar hafi verið um 5 prósent af líkamsþyngd en það telst óeðlilega lítið sé miðað við árstímann þegar hvítabirnir eru hvað feitastir. Aðalfæða hvítabjarna eru kópar sela-tegund sem kæpa á útmánuðum á hafísnum langt norður af landinu. Útilokað er að þessi óverulegi fituforði hefði nægt birnunni til að tímgast þetta árið. Krufningin leiddi ekkert annað óeðlilegt í ljós. „Aðalfæða hvítabjarna eru kópar sela-tegunda sem kæpa á útmánuðum á hafísnum langt norður af landinu. Útilokað er að þessi óverulegi fituforði hefði nægt birnunni til að tímgast þetta árið. Krufning leiddi ekkert annað óeðlilegt í ljós. Birnan var ekki smituð af tríkínum en í maga fannst sníkjuþráðormur (Contracaecum sp.) sem oft finnst í maga til dæmis kampsels og hringanóra. Gömlu birnirnir tveir sem tóku land á Skaga í júní 2008 og unga birnan sem felld var ríflega 4ra ára við Ósland í Þistilfirði í janúar 2010 voru ekki með þessi sníkjudýr. Tvö þeirra voru engu að síður smituð af tríkínum, sníkjuþráðormi sem getur borist í menn jafnt sem villt spendýr, húsdýr og gæludýr. Mikilvægt er að hindra að tríkínur nái fótfestu hér á landi, en Ísland er eitt fárra landa þar sem þessir sníkjuormar, sem reynst geta mönnum lífshættulegir, eru ekki landlægir," segir í skýrslunni. Þar segir einnig að birnan hafi ekki nærst áður en hún var felld en nokkrar gráleitar vængfjaðrir, væntanlega úr fýl, fundust í maga og nokkrar bringufjaðrir af svartfugli fundust aftast í meltingarveginum. „Þessi niðurstaða bendir til þess að birnan hafi ekki verið alveg nýkomin í land, heldur verið búin að narta í drasl sem varð á vegi hennar en vængir viðfestir brjóstbeinagrindum löngu dauðra fugla varðveitast um langa hríð á fjörum. Nokkur mosablöð og blað af krækilyngi í maga eru talin hafa slæðst ofan í birnuna þegar þorsta var svalað uppi á landi,“ segir ennfremur í skýrslunni.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Innlent Handtekin nokkrum dögum eftir að hún sagði af sér Erlent Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Innlent Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Innlent Fleiri fréttir Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg á Facebook Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Hópar slógust en enginn ætlar að kæra „Hér er um fullkomlega eðlileg viðskipti að ræða“ Hlý og góð tilfinning að mæta á Bessastaði Borinn niður af klettaborginni Sjá meira