Innlent

Dagur rabarbarans haldinn hátíðlegur

Allir eru hvattir til að mæta með rabarbaraböku í Árbæjarsafn þar sem besta bakan verður valin
Allir eru hvattir til að mæta með rabarbaraböku í Árbæjarsafn þar sem besta bakan verður valin Mynd Getty
Dagur rabarbarans verður haldinn hátíðlegur á fimmtudag með örráðstefnu og bökukeppni á Árbæjarsafni í Reykjavík.

Dagur tileinkaður rabarbaranum er haldinn til að minna á mikilvægi þess að viðhalda ræktun rabarbarans og nýtingu hans sem hefur verið samofinn sögu Íslendinga og menningu í 130 ár.

Dagskráin hefst klukkan þrjú á fimmtudag að Lækjargötu 4 á Árbæjarsafni og er sem hér segir:

Kl: 15:00 Erfðaauðlindir og gildi þeirra - Áslaug Helgadóttir

Kl: 15:20 Saga rabarbarans - Vilmundur Hansen

Kl: 15:40 Nýting rabarbarabans - Brynhildur Bergþórsdóttir

Kl: 16:00 Bökukeppni - Allir hvattir til að koma með böku - besta rabarbarabakan valin



Dagur rabarbarans er á Facebook.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×