Innlent

Stappaði fæti á höfði manns

Árásin átti sér stað á Reyðarfirði.
Árásin átti sér stað á Reyðarfirði.
Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært rúmlega fertugan karlmann fyrir líkamsárás á Reyðarfirði aðfaranótt sunnudagsins 26. september 2010. Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Austurlands. Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum Cafe Kósý.

Manninum er gefið að sök að hafa tekið annan mann hálstaki og snúið hann niður og síðan stappað á höfði hans. Fórnarlambið missti meðvitund og fann fyrir ógleði, svima og sjóntruflunum er hann kom aftur til meðvitundar.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×