Morðmálið lagt í dóm Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. febrúar 2011 14:33 Gunnar Rúnar Sigurþórsson fyrir dómi ásamt Guðrúnu Sesselju Arnardóttur verjanda sínum. Mynd/ GVA.
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni lauk eftir klukkan eitt í dag og málið var þá lagt í dóm. Ákæruvaldið krefst ítrustu refsingar yfir Gunnari Rúnari sem er sextán ára fangelsi. Verjandi hans krefst hins vegar sýknu á grundvelli 15. greinar almennra hegningalaga, þ.e. á þeirri forsendu að hann hafi verið ófær um að stjórna gerðum sínum sökum geðveiki þegar morðið var framið. Það er mat geðlækna að Gunnar Rúnar hafi þroskast eðlilega sem barn. Það hafi hins vegar snarbreyst þegar faðir hans féll frá þegar hann var níu ára gamall. Það hafi verið mikið áfall fyrir Gunnar Rúnar. Helgi Garðar Garðarsson, geðlæknir sem mat Gunnar Rúnar, sagði meðal annars að af þessu máli mætti læra að taka beri áföllum barna alvarlega. Eins og fram hefur komið í dag gaf Gunnar Rúnar ekki skýrslu fyrir dómnum, heldur ákvað hann að láta skýrslugjöf hjá lögreglu nægja.
Tengdar fréttir Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni. 7. febrúar 2011 10:44 Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag. 7. febrúar 2011 12:23 Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar „Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn. 7. febrúar 2011 11:21 Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum. 7. febrúar 2011 09:46 Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu. 7. febrúar 2011 10:06 Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu. 7. febrúar 2011 13:32 Erfiður morgunn fyrir fjölskyldu Hannesar „Það hefur verið erfitt fyrir þá sem sitja í dómsalnum að hlusta á óhugnanlegar lýsingarnar á morðinu. Ekki síst fyrir fjölskyldu, vini og aðstandendur Hannesar. Þetta hefur verið erfiður morgunn,“ sagði fréttamaðurinn Andri Ólafsson, í viðtali við Bylguna í hádeginu, þar sem hann lýsti andrúmsloftinu í réttarhöldunum yfir Gunnar Rúnari Sigurþórssyni. 7. febrúar 2011 12:16 Réttað yfir Gunnari Rúnari: Fullt út úr dyrum í héraðsdómi Aðalmeðferð fer nú fram í máli saksóknara gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í Hafnarfirði í ágúst í fyrra. 7. febrúar 2011 09:18 Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Sækja um leyfi fyrir Kvíslatunguvirkjun Annasamur sólarhringur hjá björgunarsveit Patreksfjarðar Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Hafnar ásökunum um byssuat og uppgefnir íbúar undir Steinafjalli „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Fordæmir atvikið í Grindavík Fara fram á að Mangione fái dauðarefsinguna Ekið á gangandi vegfaranda Beindi byssunni yfir höfuð björgunarsveitarmanns Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ „Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Beita öllum brögðum til að minnka tjón ef hraunið nær bænum Grindvíkingur ógnaði björgunarsveitarfólki með skotvopni „Minni kraftur í þessu samanborið við fyrri gos“ Myndir: Eldgos ógnar Grindavík Snýst allt um að tryggja öryggi fólks Gos við bæjarmörkin: Aukafréttatími í hádeginu Ein af dekkstu sviðsmyndunum að raungerast Björgunarsveitarfólki ógnað við rýmingu Eldgosið séð úr lofti Vonast til að hefja störf í Grindavík strax á morgun Sterkari merki en fyrir síðustu eldgos Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Gestir vaktir og Bláa lónið rýmt í snatri Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Sjá meira
Fór að huga að morði eftir gerð YouTube myndbandsins Hugmynd Gunnars Rúnars Sigurþóssonar um að losna við Hannes Þór Helgason virðist hafa sprottið upp eftir að hann setti myndband á YouTube með ástarjátningu til hennar til unnustu Hannesar. Þetta kom fram í máli Tómasar Zoega geðlæknis sem gerði yfirmat á Gunnari Rúnari Sigurþórssyni ásamt Kristni Tómassyni geðlækni. 7. febrúar 2011 10:44
Deilt um sakhæfi Gunnars Rúnars Í máli ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni er aðallega deilt um sakhæfi Gunnars, sagði Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari í málflutningi sínum fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Vitnaleiðslur báru þessa klárlega merki í dag, enda voru fjögur vitni og þar af þrír geðlæknar. Gunnar Rúnar hefur játað morðið á sig á fyrri stigum þess og vildi ekki bæta neitt við þann framburð í dag. 7. febrúar 2011 12:23
Aðkoman á morðstað föst í huga Hildar „Mér líður ógeðslega illa - persónan sem ég var er bara horfin," sagði Guðlaug Matthildur Rögnvaldsdóttir, unnusta Hannesar Þórs Helgasonar, við vitnaleiðslur í héraðsdómi í morgun. Guðlaug Matthildur, sem kölluð er Hildur, var niðurlút þegar hún gekk inn í dómssalinn. 7. febrúar 2011 11:21
Gunnar Rúnar svarar engu - víkur úr dómsal Gunnar Rúnar Sigurþórsson svarar engum spurningum við aðalmeðferð sem nú stendur yfir þar sem hann er ákærður fyrir að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana. Lögmaður Gunnars, Guðrún Sesselja Arnardóttir, tilkynnti við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun að hann myndi nýta sér rétt sinn til að svara engum spurningum heldur aðeins staðfesta lögregluskýrslur. Gunnar Rúnar óskaði eftir að víkja úr dómsal á meðan aðalmeðferðin stendur yfir, utan þess þegar hann staðfestir lögregluskýrslur, og var orðið við þeirri beiðni. Að þessu loknu var gert stutt hlé á þinghaldi en næst á dagskrá er skýrslutaka af geðlæknum. 7. febrúar 2011 09:46
Djúpstæð sektarkennd vegna morðsins Gunnar Rúnar Sigurþórsson þroskaðist eðlilega sem ungt barn en varð fyrir hörmulegu áfalli þegar faðir hans svipti sig lífi. Þetta sagði Helgi Garðar Garðarsson geðlæknir sem gerði geðrannsókn á Gunnari Rúnari eftir að hann var handtekinn vegna morðsins á Hannesi Þór Helgasyni í ágúst. Helgi Garðar bar vitni í dómnum í morgun. Helgi Garðar telur Gunnar Rúnar vera ósakhæfan og vill að hann sæti öryggisgæslu. 7. febrúar 2011 10:06
Svæsið geðrof gerði Gunnar Rúnar ófæran um að stjórna gerðum sínum Svæsið geðrof varð til þess að Gunnar Rúnar Sigurþórsson varð ófær um að stjórna gerðum sínum, sagði Guðrún Sesselja Arnardóttir, verjandi Gunnars Rúnars, í málflutningi fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Máli sínu til stuðnings benti hún á vitnisburð þriggja geðlækna sem hafa borið vitni fyrir dómi. Hún fer frammá sýknu í málinu. 7. febrúar 2011 13:32
Erfiður morgunn fyrir fjölskyldu Hannesar „Það hefur verið erfitt fyrir þá sem sitja í dómsalnum að hlusta á óhugnanlegar lýsingarnar á morðinu. Ekki síst fyrir fjölskyldu, vini og aðstandendur Hannesar. Þetta hefur verið erfiður morgunn,“ sagði fréttamaðurinn Andri Ólafsson, í viðtali við Bylguna í hádeginu, þar sem hann lýsti andrúmsloftinu í réttarhöldunum yfir Gunnar Rúnari Sigurþórssyni. 7. febrúar 2011 12:16
Réttað yfir Gunnari Rúnari: Fullt út úr dyrum í héraðsdómi Aðalmeðferð fer nú fram í máli saksóknara gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni sem játað hefur að hafa orðið Hannesi Þór Helgasyni að bana í Hafnarfirði í ágúst í fyrra. 7. febrúar 2011 09:18