Innlent

Laugavegurinn heitir nú Mannréttindavegur

MYND/GVA
Nafni Laugavegar hefur verið breytt og næstu þrjá daga mun gatan heita Mannréttindavegur. Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpaði nýtt götuskilti í dag við hátíðlega athöfn en nafnabreytingin er gerð til þess að minnast 50 ára afmælis Amnesty International og baráttu samtakanna í þágu mannréttinda um allan heim.

Sjálfur afmælisdagurinn er á morgun og þá hvetja samtökin almenning til að ganga Mannréttindaveginn og fagna því sem hefur áunnist í mannréttindabaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×