Innlent

Harmar rangar tölur um svifryk

Svifryksmælarnir í bænum voru meira og minna bilaðir í vetur.
Fréttablaðið/Pjetur
Svifryksmælarnir í bænum voru meira og minna bilaðir í vetur. Fréttablaðið/Pjetur
„Umhverfisnefnd harmar að mannleg mistök hafi leitt til þess að rangar upplýsingar hafi birst á svifryksmælum á heimasíðu Akureyrarbæjar,“ segir í bókun frá fundi umhverfisnefndar bæjarins.

 

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna, beindi athygli að málinu með fyrirspurn á fundi umhverfisnefndar á þriðjudag. „Fram kom í stefnuræðu formanns umhverfisnefndar sem flutt var á fundi bæjarstjórnar þann 3. maí 2011 að svifryksmælar í bænum hafi verið meira og minna bilaðir í allan vetur. Þrátt fyrir það hafa tölur um svifryk verið birtar á heimasíðu bæjarins í vetur,“ sagði í fyrirspurn Andreu, sem óskaði eftir upplýsingum um hvaðan þær tölur sem birtust á meðan mælarnir voru bilaðir komu. „Og hvers vegna var íbúum bæjarins ekki kynnt að mælarnir væru bilaðir?“

 

Í samþykkt umhverfisnefndar segir að „slíkt skuli ekki“ gerast aftur. „Umhverfisnefnd bendir einnig á að mikilvægt sé að birta réttar upplýsingar um svifryksmengun á vef Akureyrarbæjar þar sem margir treysti á að þær upplýsingar séu réttar.“ - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×