Erlent

Nefndi dóttur sína Facebook

Egyptinn Gamal Ibrahim fór heldur furðulega leið þegar hann var að leita að nafni á nýfædda dóttur sína á dögunum.

Hann nefndi dóttur sína einfaldlega Facebook. Hann segist hafa gert það til að minnast byltingarinnar í Egyptalandi í janúar sem leiddi til þess að þrjátíu ára valdasetu forsetans Hosni Mubarak lauk. Byltingin var að mestu skipulögð á samskiptavefnum Facebook.

Fjölskylda, vinir og nágrannar Facebook eru himinlifandi með þetta óvenjulega nafn og hefur hún fengið fjöldan allan af gjöfum og pökkum síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×