Tónlist

Söngvari Bombay Bicycle club á Hressó

BBI skrifar
Bombay Bicycle club.
Bombay Bicycle club.
Söngvarinn í hljómsveitinni Bombay Bicycle club mun spila á Hressó á miðvikudaginn kemur ásamt Þorbjörgu Ósk Eggertsdóttur. Tónleikarnir verða órafmagnaðir og saman munu þau taka Bombay Bicycle club lög í bland við lög eftir Þorbjörgu.

Söngvarinn Jack Steadman semur öll lög hljómsveitarinnar Bombay Bicycle Club sem kom á Airwaves í fyrra. Hljómsveitarmeðlimir höfðu ekki tíma til að ferðast um landið í það skiptið og nú ákvað Steadman að koma aftur og skoða landið.

„Hann hefur alveg oft talað um að honum finnist Ísland svo frábært og hann langaði að koma aftur," segir Þorbjörg sem ætlar m.a. að fara með hann til Vestmannaeyja og sýna honum íslenska fossa næstu daga.

Þorbjörg og Jack kynntust á Airwaves í fyrra. Eftir það hitaði Þorbjörg upp ásamt hljómsveit sinni, Mukkaló, fyrir tónleika Bombay Bicycle club í Evrópu. Sömuleiðis var Þorbjörg á ferðalagi um Evrópu á síðasta ári. Í Amsterdam rakst hún óvænt á strákana í Bombay Bicycle club og þeir drifu hana með sér á tónleika þar sem hún kom óvænt fram með hljómsveitinni á sviði.

Tónleikarnir á Hressó á miðvikudaginn byrja klukkan 10 og aðgangur verður ókeypis. Auk Þorbjargar og Jack Steadman spilar hljómsveitin Júníus Meyvant.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.