Tónlist

Stórviðburður í Hörpu

Trausti Júlíusson skrifar
Einn af hápunktum Listahátíðar í Reykjavík 2012 verða, án efa, tónleikar breska tónlistarmannsins Bryans Ferry í Hörpu 27. og 28. maí.

Ferry er á meðal stóru nafnanna í poppsögu síðustu 40 ára. Hann lærði myndlist á sjöunda áratugnum og stofnaði þá sínar fyrstu hljómsveitir, The Banshees og Gas Board sem hvorug vakti nokkra athygli. Það breyttist með hljómsveitinni Roxy Music árið 1970. Sveitin, sem í voru auk Ferrys meðal annars Brian Eno og Phil Manzanera, var undir miklum áhrifum frá myndlistinni, bæði hvað útlit, ímynd og sjálfa tónlistina varðar. Fyrstu Roxy Music-plöturnar eru á meðal flottustu verka rokksögunnar og höfðu mikil áhrif. Roxy hætti árið 1976, en var endurstofnuð 1978 og hefur starfað með hléum síðan.

Ferill Ferrys hefur lengst af skipst á milli hljómsveitarinnar og sólóferilsins. Fysta sólóplatan hans, These Foolish Things, kom út 1973 og hafði að geyma gamla dægursmelli í nýjum búningum, en sú nýjasta, Olympia, kom út 2010. Í fyrra gerði Ferry víðreist til að fylgja henni eftir. Hann hefur samið mikið af flottum lögum og textum, sérstaklega á fyrrihluta ferilsins, en hann hefur líka gert sínar útgáfur af lögum annarra, m.a. mörgum Dylan-lögum. Ferry er frábær söngvari og mjög metnaðarfullur og kröfuharður tónlistarmaður.

Aðdáendur Ferrys skiptast í tvo hópa. Annars vegar eru það þeir sem dýrka gömlu Roxy-plöturnar, hins vegar þeir sem féllu fyrir ofurfágaða poppinu sem einkenndi tónlist Ferrys á níunda og tíunda áratugnum þegar lög eins og Avalon, More Than This og Slave to Love slógu í gegn.

Ferry passar sig á því að höfða til beggja þessara hópa á tónleikum eins og sjá má á lagalistanum frá tónleikum í Berlín í desember. Þar tók hann 24 lög, mikið af gömlum Roxy-lögum, poppsmellina frá níunda áratugnum og nokkur tökulög, auk þriggja laga af Olympiu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.