Lífið

Leyndardómsfullt verk

Björn Thors.
Björn Thors.
Leikverkið Makbeð verður sett á svið Þjóðleikhússins á þessu leikári. Æfingar á verkinu standa nú yfir en yfir þeim hvílir mikil leynd.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins höfðu þáttastjórnendur Djöflaeyjunnar áhuga á að fylgjast með fyrsta samlestri og æfingum og sýna í nokkrum innslögum í janúar.

Leikstjórinn, Benedict Andrews, tók hins vegar ekki í mál að nokkur fylgdist með æfingum og gerist það líklega ekki oft að leikstjóri afþakki fjölmiðlaumfjöllun. Á meðal leikenda í verkinu fræga eru Björn Thors, Margrét Vilhjálmsdóttir, Arnar Jónsson og Atli Rafn Sigurðarson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.