Lífið

Stjörnufans hjá Wow

myndir/sigurjón ragnar

Fleiri hundruð gestir mættu í stórglæsilegt innflutningspartý í Höfðatúni 12 í Reykjavík á vegum WOW-flugfélagsins á föstudaginn var. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá stjörnufans skemmta sér.



Sirkus Ísland sýndi listir sínar, Berndsen, Þórunn Antonía og Steindi tóku lagið og sjálfur Tommi grillaða gómsæta Búlluborgara fyrir gestina.



Skoðaðu myndirnar hér.



Stemningin minnti óneitanlega á skemmtistaðinn Tunglið sem forstjórinn Skúli Mogensen átti þátt í að skapa en sá staður var gríðarlega vinsæll. Á kvöldinu voru svokallaðar WOW-stjörnur kynntar til leiks en Annie Mist og Jón Margeir voru styrkt um fría miða með WOW air í heilt ár fyrir frábæran árangur í íþróttum.

myndir/sigurjón ragnar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×