Lífið

Annað barn á leiðinni

MYND / COVER MEDIA
Beverly Hills 90210-gleðigosinn Ian Ziering á von á sínu öðru barni með eiginkonu sinni Erin.

Parið á dótturina Miu Loren sem er átján mánaða en nýja barnið kemur í heiminn í maí á næsta ári.

"Mig hefur alltaf langað í fjölskyldu. Það að eignast annað barn er eins og draumur að rætast," segir Ian en þau Erin giftu sig í maí árið 2010.

Ian var einn af aðalmönnunum í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210 í den en fæst nú við að leika, framleiða og leikstýra sjónvarpsþáttum.

"Ég er með mörg járn í eldinum," segir Ian sposkur á svip.




Til hamingju Ian og Erin!







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.