Tónlist

Azealia Banks aflýsir tónleikum á Íslandi

Tónleikum Azealiu Banks sem halda átti í Vodafonehöllinni þann 6. júní hefur verið aflýst. „Söngkonan hefur einnig aflýst um 25 tónleikum víða um lönd í júní og júlí. Ástæðan er samkvæmt upplýsingum frá umboðsmanni söngkonunnar, að vegna mikilla anna hefur hún ekki náð að ljúka vinnu við væntanlega hljómplötu," segir í fréttatilkynningu á midi.is.

Aðstandendur tónleikanna gátu ekki bókað aðra tónleika með söngkonunni á þessu ári. Á næstu dögum mun því starfsfólk Midi.is hafa samband við alla þá sem keyptu miða á tónleikana vegna endurgreiðslu. Einnig geta miðaeigendur sjálfir haft samband í síma 540-9800 eða á netfangið midi@midi.is.

Azealia hóf ferilinn sem dansari og leikari en vakti fyrst athygli sem söngkona með laginu Seventeen fyrir tveimur árum. Í kjölfarið kom út lagið L8R og síðan rómuð útgáfa hennar á Slow Hands með hljómsveitinni Interpol. Núna hefur hún samið við útgáfurisann Universal og upptökustjóri plötunnar hennar verður Paul Epworth, sem tók upp metsöluplötu Adele, 21. Tónleikar hennar hér á landi mæltust vel fyrir, enda var hún einn stærsti listamaðurinn á leið hingað sem höfðar til yngri kynslóðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.