Körfubolti

Helena bikarmeistari með Good Angels Kosice

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir varð í gær slóvakískur bikarmeistari með Good Angels Kosice eftir að liðið vann öruggan 79-36 sigur á ZBK Whirlpool Poprad í úrslitaleiknum.

Helena skoraði 10 stig í úrslitaleiknum og var næststigahæst í liði Good Angels á eftir miðherjanum Natalia Vieru sem skoraði 11 stig. Good Angels Kosice vann fyrsta leikhlutann 22-11 og var með 28 stiga forskot í hálfleik, 44-16.

Helena og félagar eru því áfram ósigraðar á heimavístöðum en auk þess að vera orðnar bikarmeistarar þá hafa þær unnið alla þrettán leiki sína í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×