Körfubolti

Tap hjá Íslendingaliðunum á Spáni

Jón Arnór.
Jón Arnór.
Jón Arnór Stefánsson skoraði 11 stig og tók 2 fráköst er lið hans, CAI Zaragoza, tapaði á útivelli, 77-64, gegn Cajasol Banca Civica í spænsku úrvalsdeildinni.

Jón Arnór spilaði í 28 mínútur. Var heitur inn í teig þar sem hann hitti úr 4 af 5 skotum sínum. Ekki gekk eins vel fyrir utan þriggja stiga línuna þar sem aðeins eitt af sex skotum fór niður.

Haukur Pálsson komst ekki á blað en tók þrjú fráköst er lið hans, Assignia Manresa, tapaði gegn Asefa Estudiantes, 76-70.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×