Innlent

Tíu konur íhuga málsókn út af PIP-brjóstum

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar

Tíu íslenskar konur með PIP-sílikonpúða undirbúa nú málsókn gegn lýtalækni sínum. Púðar sumra þeirra eru farnir að leka og þær hafa fundið fyrir óþægindum og útbrotum. Þær vilja að púðarnir verði fjarlægðir þeim að kostnaðarlausu.



Konurnar eru allar með sílikonpúða frá franska framleiðandanum PIP. Hættara er við að þeir púðar leki en púðar frá öðrum framleiðendum. Um fjögur hundruð íslenskar konur er með sílikonpúða frá PIP.



Tíu konur hafa fengið Sögu Ýrr Jónsdóttur, héraðsdómslögmann hjá Vox lögmannsstofu, til að undirbúa málsókn á hendur lýtalækni þeirra, Jens Kjartanssyni, en þær vilja að hann fjarlægi púðana þeim að kostnaðarlausu.



„Ég fékk fyrsta símtalið bara rétt fyrir jól og það var kona sem hringdi í mig og sagði mér frá því að hún væri með áhyggjur af því hún væri með þessa púða. Hún hafði verið með einhver einkenni og var nýbúin að heyra í umræddum lækni og var með áhyggjur af því að samkvæmt skilningi hennar, þá þurfti hún að kosta aðra aðgerð, ef hún vildi losna við þessa púða. Upp frá því hringdu einhverjir sem tengdust henni og boltinn fór að rúlla og síðan þá eru tíu konur sem eru búnar að hafa samband við mig og vilja að ég fari með málið fyrir þær. Þær eiga það í rauninni bara allar sameiginlegt að þær hafa fylgst með umfjölluninni um þessa PIP púða. Einhverjar af þeim hafa verið með einhver óþægindi, hafa verið með verki í brjóstum, útbrot og annað," Segir lögfræðingurinn Saga Ýrr.



Saga hitti Jens á fundi í gær og segir hún hann allan af vilja gerðan til að reyna að ná sátt í málinu.



„Sá fundur var mjög góður og hann er að reyna að vinna í því að allavega þær sem eru með púða sem eru byrjaðir að leka að púðarnir verði fjarlægðir hjá þeim, þeim að kostnaðarlausu. Eftir situr þá sá hluti sem að er með púða sem að ekki eru byrjaðir að leka. Þær náttúrulega vilja ekki hafa iðnaðarsílikon í brjóstunum. Nú er ég bara búin að vera síðastliðna daga að lesa mér til um þessa púða og skoða þá hvort að málið myndi beinast gegn umræddum lækni eða íslenska ríkinu, náist samningar ekki," segir Saga að lokum.


Tengdar fréttir

Grunar að sílikonbrjóstin séu farin að leka

Kolbrún Jónsdóttir hefur greitt hálfa aðra milljón fyrir sílíkonpúða og aðgerðir á brjóstum. Hún er núna með sílíkonpúða frá PIP. Undanfarið hálft ár hefur hún fundið fyrir miklum verkjum og grunar að sílíkonið sé farið að leka.

Athugasemdir gerðar fyrir meira en áratug

Meira en áratugur er síðan að gerðar voru athugasemdir við starfsemi franska fyrirtækisins PIP sem talið er hafa framleitt gallaða silikonpúða í brjóst. Fréttir af göllunum hafa valdið skelfingu á meðal kvenna um allan heim að undanförnu.

Landlæknir vill upplýsingar um brjóstastækkanir

Landlæknir sendi í dag bréf til allra lýtalækna þar sem óskað er upplýsinga um þær sílíkonaðgerðir sem þeir hafa gert á brjóstum. Þá munu í fyrsta sinn liggja fyrir gögn um aldursdreifngu kvenna með sílíkonbrjóst og þróun á fjölda aðgerða eftir árum.

Bretar vilja skrásetja brjóstastækkunaraðgerðir

Heilbrigðisráðherra Bretlands er hlynntur því að tekin verði upp heildarskráning sílikonaðgerða á brjóstum. Skortur á skráningu torveldar samantekt á fjölda þeirra sílikonpúða sem hafa rifnað.

Konur með PIP brjóst fá bréf

Allar konu sem hafa fengið PIP-brjóstafyllingar eftir árið 2000 munu á næstunni fá bréf með nánari upplýsingum og leiðbeiningum um það hvernig skal bregðast við vegna fyllingarinnar, sem hefur valdið talsverðum óróa hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn félags íslenskra lýtalækna (FÍL).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×