Lífið

Angelina og Brad selja sjónvarpsstjörnu húsið sitt

myndir/cover media
Brad Pitt og Angelina Jolie seldu heimilið þeirra í Malibu í Kaliforníu á 12 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega einn og hálfan milljarð króna.

Sjónvarpsstjarnan Ellen DeGeneres keypti húsið sem er hið glæsilegasta með fjórum svefnherbergjum, klikkuðu útsýni, sundlaug og tennisvelli. Ekki skemmir fyrir að fyrirsætan Cindy Crawford og leikarinn Leo DiCaprio búa í hverfinu.

Brad og Angelina borguðu 8. 4 milljónir dollara fyrir húsið í mars árið 2005 stuttu eftir að Brad skildi við leikkonuna Jennifer Aniston.

Skoða má húsið í meðfylgjandi myndasafni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×