Innlent

Kolfinna: Málið var afgreitt fyrir mörgum árum

Kolfinna Baldvinsdóttir, ásamt föður sínum, Jóni Baldvini Hannibalssyni.
Kolfinna Baldvinsdóttir, ásamt föður sínum, Jóni Baldvini Hannibalssyni. mynd/365
Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram, segir að það sé ólýsanlegt að vera stödd erlendis nú þegar fjölmiðlar fjalla um umfjöllun Nýs Lífs. Nýtt líf segir í dag frá erótískum bréfum sem Jón Baldvin sendi Guðrúnu Harðardóttur, frænku Bryndísar. Fyrstu bréfin fékk hún þegar hún var 10 ára gömul.

Á Facebook-síðu sinni segir Kolfinna: „Ólýsanlegt að sitja hér í Brussel og sjá íslenska fjölmiðla gera sér mat úr máli sem var afgreitt fyrir mörgum árum og á rætur sínar í alvarlegum veikindum sem hafa valdið okkur miklum fjölskylduharmleik sl. 20 ár," skrifar Kolfinna. Í athugasemdarkerfi á síðunni útskýrir hún að veikindin hafi verið hjá systur sinni.

Í viðtalinu við Nýtt líf segir Guðrún meðal annars að Jón Baldvin hafi dekrað hana sem barn og komið fram við hana sem prinsessu. Þá lýsir hann því einnig að hann hafi umgengist átján ára vændiskonu í embættisferð í Tallinn í Eistlandi árið 2001.

Nýtt líf kom í verslanir í dag.


Tengdar fréttir

Jón Baldvin krefst þess að sjá umfjöllun Nýs Lífs - íhugar ella lögbann

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra krefst þess að fá að sjá umfjöllun Nýs Lífs um hann sem birtist í nýjasta tölublaðinu sem kemur út á morgun. Hann segir ennfremur skýlausa kröfu að hann fái að svara fyrir sig í sama blaði. Ella íhugi hann að sækjast eftir lögbanni á dreifingu þess. Þetta staðfestir Þóra Tómasdóttir ritstjóri tímaritsins í samtali við fréttastofu en hún hefur ekki svarað kröfu Jóns Baldvins.

Hvetur fólk til að kaupa ekki Nýtt líf

Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, hvetur fólk til þess að kaupa ekki nýjasta tölublaðið af Nýju lífi. Í blaðinu er birt grein um samskipti Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, við stúlku á unglingsaldri fyrir um áratug síðan. Stúlkan er í fjölskyldu Bryndísar Schram, eiginkonu Jóns.

Þóra: Umfjöllunin krafðist ekki skýringa Jóns Baldvins

Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins Nýs Lífs segir að umfjöllun nýjasta tölublaðsins er varðar Jón Baldvin Hannibalsson og bréfaskriftir hans til unglingsstúlku, byggi á gögnum úr lögreglumáli, meðal annars bréfum sem hann hefur gengist við að hafa ritað. Umfjöllunin hafi því að hennar mati ekki krafist viðbragða af hans hálfu.

"Maladomestica 10 punktar“

Blaðamaður hringdi og sagðist hafa fyrir því heimildir að á morgun (23. feb. '12), birtist viðtal í Nýju lífi, þar sem ég væri borinn alvarlegum sökum um meinta "kynferðislega áreitni" við stúlku í fjölskyldu okkar Bryndísar.

Bréf Jóns Baldvins ollu reiði, sorg og biturð

Guðrún Harðardóttir segir að bréfin sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi henni á sínum tíma hafi gert hana hrædda og ástæða þess að hún hefur kosið að greina frá þeim nú sé sú að hún hafi fengið nóg. Guðrún segir í viðtali í nýjasta tölublaði Nýs lífs, þar sem bréf Jóns Baldvins eru birt, að hún hafi reglulega fundið fyrir reiði, sorg og biturð, og því hafi hún kosið að koma þessu frá sér.

Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra , biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent 16 ára frænku eiginkonu sinnar bréf, sem á köflum voru erótísk. Jafnframt erótíska bók eftir Vargas Llosa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×