Leikjavísir

CCP með 8 milljarða í tekjur á síðasta ári

Tekjur tölvuleikjaframleiðandans CCP námu 66 milljónum dollara á síðast ári eða um 8 milljörðum íslenskra króna.

Á tæknifréttasíðunni TechCrunch kemur fram að heildartekjur fyrirtækisins hafi verið um 300 milljónir dollara frá því tölvuleikurinn EVE Online kom á markað. Þá kemur fram að árlegur vöxtur teknanna hafi verið rúm 50%.

Rúmlega 400.000 manns spila tölvuleikinn að staðaldri og hefur notendum fjölgað staðfastlega frá því leikurinn var kynntur árið 2003.

Í kjölfar skipulagsbreytinga á síðasta ári þurfti CCP að segja upp 20% starfsmanna sinna. Þá fækkaði notendum þó nokkuð á því tímabili.

CCP vinnur nú að þróun tölvuleikjarins DUST 514 en hann fer í sölu í sumar. DUST 514 er fyrstu persónu skotleikur sem verður aðeins fáanlegur á Playstation 3 leikjatölvunni.

Fyrstu persónu skotleikir eru eitt vinsælasta tölvuleikjaform veraldar en leikir á borð við Call of Duty: Modern Warfare 3 og Battlefield 3 hafa halað inn milljörðum í sölutekjur.

Hægt er að sjá brot úr DUST 514 hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.