Aðeins fyrirliðar fá að ræða við dómarann | ný regla í Noregi 2. mars 2012 13:30 Bente Erichsen og Kjetil Siem skrifuðu undir samkomulagið sem kallast "handaband til friðar" Johannes Granseth/Nobel Peacecenter
Norska knattspyrnusambandið, NFF, hefur gefið það út að leikmönnum verði óheimilt að ræða við dómara á meðan leikur stendur yfir. Hugmyndin er sú að aðeins fyrirliðar eigi rétt á því að tjá sig við dómarana á meðan leik stendur, aðrir leikmenn verða að halda sig á mottunni. Þeir sem geta ekki haldið aftur af sér munu fá gult spjald í refsingu og í sumum tilvikum rautt spjald. NFF hefur undirritað samkomulag við stofnun sem kennd er við friðarverðlaun Nóbels, og er mikil alvara á bak við verkefnið. Á vefsíðu NFF er sagt frá því að reglan sé hluti samstarfsverkefni sem kallast „handaband til friðar". Markmiðið sé að koma friðarskilaboðum áleiðis í samfélagsumræðuna og íþróttaviðburðir á borð við fótboltaleiki skipa þar stórt hlutverk. Norðmenn hafa ákveðið að útfæra „handaband til friðar" með þessum hætti: Í upphafi hvers leiks á vegum NFF munu fyrirliðarnir heilsast „formlega" þar sem að sjónvarpsupptökuvélar munu taka upp hljóð og mynd af þeim atburði. Að leik loknum verður sami háttur hafður á, fyrirliðarnir munu þakka mótherjunum og dómurum fyrir leikinn í „beinni" sjónvarpsútsendingu. Ekki kemur fram í tilkynningu NFF hvenær þessar nýju áherslur verða teknar upp. Búast má við því að margir leikmenn í norska fótboltanum eigi eftir að lenda í miklum vandræðum með að aðlagast þessum breyttu áherslum.
Mest lesið Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina Handbolti „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Handbolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Immobile skaut Bologna í úrslit Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Sjá meira