Fótbolti

Zlatan sendi sjónvarpskonu nítján rósir

Zlatan fannst nauðsynlegt að minna konuna á hvað hann væri búinn að skora mikið.
Zlatan fannst nauðsynlegt að minna konuna á hvað hann væri búinn að skora mikið.
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður AC Milan, móðgaði Veru Spadini, fréttmann Sky á Ítalíu, eftir leik á dögunum og hefur nú séð að sér.

Stúlkan spurði Zlatan fullkomlega eðlilegrar spurningar en Zlatan svaraði með því að segja: "Hvað í fjandanum ert þú að horfa á?"

Zlatan hefur nú hringt í Veru og beðið hana formlega afsökunar.

Þess utan sendi hann henni nítján appelsínugular rósir - eitt fyrir hvert mark sem hann hefur skorað í deildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×