Fótbolti

Muntari skaut Milan aftur á toppinn

Muntari fagnar í kvöld.
Muntari fagnar í kvöld.
AC Milan komst aftur á topp ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld er liðið vann fínan útisigur á Chievo.

Sigurinn var þó ekki auðveldur. Sulley Muntari kom Milan yfir eftir aðeins átta mínútna leik og á því forskoti hékk Milan allt til loka.

Milan er með tveggja stiga forskot á Juventus en hefur leikið einum leik meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×