Körfubolti

Jón Arnór og félagar eiga enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón Arnór í leik með KR árið 2009
Jón Arnór í leik með KR árið 2009 Mynd / Vilhelm
Jón Arnór og félagar í Zaragoza unnu flottan sigur, 65-59, gegn Banca í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en með sigrinum á liðið ennþá möguleika á því að komast í úrslitakeppnina.

Jón Arnór Stefánsson átti ágætan leik og skoraði sex stig. Zaragoza er sem stendur í 9. sæti deildarinnar en ekki er langt í liðið fyrir ofan, Lagun, sem vermir síðasta sætið inn í úrslitakeppnina.

Manresa bar sigur úr býtum gegn Estudiantes 78-75 en Haukur Helgi Pálsson leikur með Manresa en hann kom ekki við sögu í leiknum í dag. Manresa er í 10. sæti deildarinnar og á ekki möguleik á sæti í úrslitakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×