Sport

Luck valinn fyrstur í nýliðavali NFL-deildarinnar

Luck var ánægður eftir að hafa verið valinn fyrstur.
Luck var ánægður eftir að hafa verið valinn fyrstur.
Fyrsta umferð nýliðavals NFL-deildarinnar fór fram í nótt og kom það fáum á óvart að leikstjórnandinn Andrew Luck frá Stanford-háskólanum hefði verið valinn fyrstur af Indianapolis Colts.

Luck þykir vera gríðarlegt efni og hann fær það verðuga verkefni að leysa sjálfan Peyton Manning af hólmi en Manning er farinn til Denver.

Annar leikstjórnandi, Robert Griffin þriðji, var valinn annar í nýliðavalinu af Washington Redskins. Griffin þriðji, eða RG3 eins og hann er oft kallaður, er gríðarlegur íþróttamaður og er búist við miklu af honum og Luck á komandi árum.

Hlauparinn Trent Richardson var svo valinn þriðji í valinu af Cleveland Browns.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×