Fótbolti

Emil í liðinu er Verona tapaði óvænt

Emil Hallfreðsson og félagar í ítalska liðinu Hellas Verona töpuðu óvænt fyrir Crotone, 3-1, í ítölsku B-deildinni í dag.

Verona á toppnum fyrir leikinn en Crotone í 14. sæti þannig að flestir bjuggust við sigri Verona. Svo varð ekki. Crotone 3-0 yfir í hálfleik og ballið búið.

Emil var í byrjunarliði Verona í dag en var tekinn af velli er korter lifði leiks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×