Leikjavísir

Angry Birds Space niðurhalað 50 milljón sinnum

mynd/Rovio
Angry Birds Space, nýjustu viðbótinni við Angry Birds tölvuleikinn, hefur verið niðurhalað 50 milljón sinnum frá því að hún fór í almenna sölu í síðasta mánuði.

Á vefsíðu finnska tölvuleikjaframleiðandans Rovio kemur fram að Angry Birds Space hafi slegið öll met og að fyrirtækið sé nú að vinna að næstu viðbót við tölvuleikinn.

Enginn tölvuleikur hefur náð jafn miklum vinsældum á svo skömmum tíma. Í síðustu viku tilkynntu framleiðendur tölvuleiksins Draw Something að leikurinn hefði náð 50 milljóna takmarkinu á 50 dögum.

Angry Birds Space náði þessum áfanga á aðeins 35 dögum.

Upprunlega Angry Birds tölvuleikurinn nýtur síðan enn gríðarlegra vinsælda en honum hafði verið niðurhalað 700 milljón sinnum fyrr á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.