Körfubolti

Boston beit frá sér

Paul Pierce átti flottan leik.
Paul Pierce átti flottan leik.
Boston Celtics hleypti lífi í einvígi sitt við Miami Heat í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar með sannfærandi sigri, 101-91, í nótt. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Miami.

Rajon Rondo, Paul Pierce og Ray Allen skoruðu allir yfir 20 stig fyrir Boston. Garnett með 24 stig og 11 fráköst og með yfirburði undir körfunni.

LeBron James með 34 stig fyrir Miami en það dugði ekki til að þessu sinni. Dwyane Wade með 18.

Celtics hafði lítið skorað í teignum fyrstu tvo leikina en leikmenn liðsins keyrðu grimmt að körfunni í nótt og fengu 58 stig þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×