Skýrsla um SPKEF inn á borð sérstaks saksóknara Magnús Halldórsson skrifar 12. júní 2012 12:08
Skýrsla sem unnin var fyrir Fjármálaeftirlitið um starfsemi SPKEF er komin á borð embættis sérstaks saksóknara en gert er ráð fyrir því að hún verði kynnt fyrir kröfuhöfum sjóðsins á næstu vikum. Stór hluti skulda SPKEF var vegna lausafjárfyrirgreiðslu seðlabankans. Ólafur Svansson hæstaréttarlögmaður, sem er bústjóri þrotabús SPKEF, segir að skýrsla sem endurskoðunarfyrirtækið PWC vann fyrir Fjármálaeftirlitið um starfsemi sjóðsins fyrir hrun, verði kynnt fyrir kröfuhöfum síðar í þessum mánuði. Hann vildi ekki tjá sig um efnisatriði skýrslunnar þegar fréttastofa leitaði eftir því í morgun, en sagði hana vera eitt af þeim gögnum sem hjálpuðu til við að greina hvers vegna fór sem fór fyrir sjóðnum. Embætti sérstaks saksóknara hefur fengið skýrsluna afhenta, en Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að ekki væri hægt að veita neinar upplýsingar í hvaða farvegi mál væru sem snéru að sparisjóðnum. SPKEF mun kosta ríkissjóð nálægt um 26 milljarða króna, þegar allt er talið, en úrskurðarnefnd undir formennsku Ragnars Hall hæstaréttarlögmanns komst að þeirri niðurstöðu að ríkið þyrfti að leggja Landsbankanum til 19,2 milljarða króna vegna yfirtöku bankans á öllum skuldbindingum sjóðsins. Auk vaxta og um 900 milljóna króna eiginfjárframlags til nýstofnaðs sparisjóðs árið 2010, er upphæðin nærri 26 milljörðum. Upplýst er um það í Fréttablaðinu í dag að skuld SPKEF umfram um 56 milljarða króna innlán viðskiptavina, sé að mestu tilkomin vegna lausafjárfyrirgreiðslu Seðlabankans við sjóðinn, á síðasta starfsári hans áður en Landsbankinn tók yfir skuldbindingar sjóðsins. Seðlabankinn neitar að upplýsa frekar um þessa lausafjárfyrirgreiðslu við sjóðinn, sem er langstærstur hluti tæplega 14 milljarða skuldar SPKEF við fjármálafyrirtæki vegna lausafjárvanda sjóðsins. Seðlabankinn ber því við að hann megi ekki tjá sig um einstök viðskipti bankans, samkvæmt lögum um starfsemi seðlabankans.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Fleiri fréttir Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Spyr hvort Ísland vilji vera miðpunktur eða eftirbátur annarra Sjá meira