Sport

Auðvelt hjá Djokovic

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Djokovic mundar forhöndina á aðalvellinum í dag.
Djokovic mundar forhöndina á aðalvellinum í dag. Nordicphotos/AF
Serbinn Novak Djokovic hóf titilvörn sína í einliðaleik karla á Wimbledon-mótinu með þægilegum sigri á Spánverjanum Juan Carlos Ferrero 6-3, 6-3 og 6-1.

Djokovic tapaði annarri uppgjafarlotu sinni og útlit um tíma að Ferrero gæti veitt honum alvöru keppni. Serbinn, sem situr í öðru sæti heimslistans, setti einfaldlega í annan gír og Spánverjinn átti aldrei möguleika.

Leikurinn fór fram á aðalvellinum á Wimbledon þar sem Djokovic lagði Spánverjann Rafael Nadal í úrslitaleik síðasta árs.

Djokovic mætir sigurvegaranum úr viðureign Ryan Harrison frá Bandaríkjunum og Lu Yen-hsun frá Tævan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×