Inzaghi tekur við unglingaliði AC Milan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2012 22:30 Filippo Inzaghi skoraði sigurmark AC Milan í sínum síðasta leik. Mynd/AFP
Það verður ekkert að því að ítalski framherjinn Filippo Inzaghi semji við lið í Englandi því kappinn hefur samþykkt að taka við unglingaliði AC Milan. Inzaghi var einn af mörgum eldri leikmönnum AC Milan sem fengu ekki nýjan samning hjá félaginu. Filippo Inzaghi var í framhaldinu orðaður við ensku liðin Reading og Watford á dögunum en þessi 38 ára gamli leikmaður ætlar að leggja skóna á hilluna og snúa sér að þjálfun. Hann mun taka við 17 ára liði AC Milan. Inzaghi var búinn að leika með AC Milan frá árinu 2001 en hann kom til liðsins frá Juventus. Inzaghi skoraði alls 126 mörk í 300 leikjum með AC Milan í öllum keppnum. Inzaghi er annar markahæsti leikmaður í sögu Evrópukeppna félagsliða á eftir Raul en þessi markheppni Ítali skoraði 70 Evrópumörk á sínum ferli. Filippo Inzaghi endaði því feril sinn með AC Milan með því að skora sigurmark liðsins á móti Novara í ítölsku deildinni og fagnaði því vel með stuðningsmönnum liðsins.
Ítalski boltinn Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira