Erlent

Tökur hafnar á Arrested Development

BBI skrifar
Mynd/Twitter síða Bateman
Tökur á fjórðu þáttaröð grínþáttanna Arrested Development hófust í gær. Jason Bateman sem leikur Michael Bluth í þáttunum skellti í gær mynd af tökustað inn á Twitter síðu sína undir orðunum"First Day. Away we go..." eða „Dagur eitt. Hér kemur það ..."

Ron Howard, sem segir söguna í þáttunum og kemur að sviðsetningu, skrifaði líka örfærslu á Twitter um fyrsta tökudag. Þar segir hann alla elska að vera mættir aftur til leiks og segir að handritið sé óborganlega fyndið.

Þáttaraðarinnar hefur lengi verið beðið og með mikilli eftirvæntingu enda slógu fyrri þáttaraðirnar þrjár rækilega í gegn. Nú eru tökur loks hafnar og munu skila sér í tíu nýjum þáttum á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×