Sport

Beyonce treður upp á Super Bowl

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Beyonce fylgist hér með körfuboltaleik New York Knicks og New Jersey Nets fyrr á þessu ári.
Beyonce fylgist hér með körfuboltaleik New York Knicks og New Jersey Nets fyrr á þessu ári. Nordic Photos / Getty Images
Poppstjarnan Beyonce hefur tilkynnt að hún muni flytja nokkur lög í hálfleiksskemmtun í úrslitaleik NFL-deildarinnar, Super Bowl.

Super Bowl fer fram í New Orleans þann 3. febrúar næstkomandi en leikurinn er stærsti íþrótta- og sjónvarpsviðburður ársins í Bandaríkjunum.

Talið er að um 100 milljónir sjónvarpsáhorfenda í Bandaríkjunum muni fylgjast með skemmtuninni í hálfleik og mun fleiri um allan heim.

Meðal þeirra sem hafa áður troðið upp við sama tilefni eru Madonna, Rolling Stonnes, Bruce Springsteen, U2 og Paul McCartney.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×