Lífið

Rútuferð um Reykjavík

Jón Atli Jónasson
Jón Atli Jónasson
Ýmsar uppákomur verða í gangi í miðborg Reykjavíkur í tengslum við Airwaves-hátíðina.

Ein slík verður nýstárleg rútuferð á vegum Reykjavík Rocks þar sem rúntað verður um borgina á meðan ferðalangar verða fræddir um tónlistarsögu Reykjavíkur.

Stoppað verður á sögufrægum stöðum og hljómsveit mun einnig stíga á svið.

Ferðin verður farin fjórum sinnum á dag frá Kex Hosteli og miðaverð er um fjögur þúsund krónur. Leiðsögumaður verður leikritaskáldið Jón Atli Jónasson en hann naut aðstoðar poppfræðingsins Dr. Gunna við samsetningu ferðarinnar.

Nánari upplýsingar um rokkrútuferðirnar er að finna hér á heimasíðu Kexins.

Rútuferðirnar verða farnar fjórum sinnum á dag frá Kexinu á meðan á Airwaves stendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×