Körfubolti

Sætur sigur hjá Sundsvall

Hlynur og Jakob.
Hlynur og Jakob.
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons komst á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld er liðið vann nauman útisigur, 82-85, á Solna Vikings.

Staðan var jöfn, 82-82, þegar 19 sekúndur voru eftir af leiknum. Sundsvall átti lokaorðið og vann afar sætan útisigur.

Jakob Örn Sigurðarson var næststigahæstur í liði Sundsvall með 15 stig. Hlynur Bæringsson skoraði 13 og tók 10 fráköst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×