Sport

Steelers fékk ekki hótel í New York

Big Ben og félagar verða líklega ekki í þessum búningi um helgina.
Big Ben og félagar verða líklega ekki í þessum búningi um helgina.
Yfirmenn NFL-deildarinnar þurfa að beygja reglurnar fyrir Pittsburgh Steelers um helgina þar sem Steelers fær ekkert hótel í New York.

Steelers mætir NY Giants á sunnudag og samkvæmt reglum NFL-deildarinnar þarf aðkomuliðið að vera komið daginn fyrir leik.

Hótelið sem Steelers ætlaði að gista á er lokað enda rafmagnslaust. Engin hótelherbergi eru þess utan laus á svæðinu.

Steelers þarf því að fljúga til NY um morguninn og svo heim strax eftir leik en liðið ætlaði sér upprunalega að gista eftir leik. Er það venjulega gert svo menn nái að hvílast almennilega.

Þetta er ekki beint draumaundirbúningurinn fyrir Steelers sem er aðeins búið að vinna einn útileik í vetur en tapa þremur.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×