Menning

Morðæði í bíóhúsum um helgina

Tvær morðsögur eru frumsýndar um helgina sem báðar byggja á metsölubókum.

Tyler Perry reynir að fylla í spor Morgans Freeman og fer með hlutverk Alex Cross í samnefndri mynd sem kemur í kvikmyndahús um helgina. Freeman lék Cross í þeim tveimur myndum sem þegar hafa verið gerðar um hann, Along Came a Spider og Kiss the Girls, en allar eru myndirnar byggðar á metsölubókum James Patterson. Myndinni er leikstýrt af Rob Cohen sem á meðal annars myndina The Fast and the Furious á ferlinum, en það var fyrsta myndin í seríunni endalausu.

Lost-stjarnan Matthew Fox, sem margir muna eftir úr fjölskylduþáttunum Party of Five, bregður sér hér í alveg nýtt hlutverk og leikur sturlaða raðmorðingjann Picasso. Sá sérhæfir sig í pyntingum og nýtur þess að kvelja fórnarlömb sín eins mikið og hann mögulega getur. Cross og félagi hans Tommy Kane, leikinn af Edward Burns, leggja allt í sölurnar til að hafa hendur í hári morðingjans og áður en langt um líður er baráttan orðin heldur betur persónuleg.

Spennutryllirinn Nobels Testemente er einnig frumsýndur um helgina og er byggður á metsölubók Lizu Marklund. Myndin fjallar um blaðamanninn Anniku Bengtzon sem sérhæfir sig í umfjöllun um glæpamál fyrir sænskt dagblað. Þegar hún lendir í skotárás þar sem tvær manneskjur týna lífinu fær hún ekki að fjalla um það sjálf, verandi vitni í því. Fljótlega gerir hún sér þó grein fyrir að maðkur er í mysunni og leggur hún sjálfa sig í mikla hættu til að komast til botns í málinu.

- trs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.