Lífið

Líka jólaskraut

María Manda hannaði standandi jólakort fyrir jólin í fyrra. Núna hefur hún bætt við standandi pakkamerkispjöldum sem hún hlaut verðlaun fyrir.
María Manda hannaði standandi jólakort fyrir jólin í fyrra. Núna hefur hún bætt við standandi pakkamerkispjöldum sem hún hlaut verðlaun fyrir. MYND/ANTON
María Manda umbúðahönnuður hlaut Skúlaverðlaunin í ár fyrir pakkamerkispjöld sem hún hannaði.

Standandi pakkamerkispjöldin hennar Maríu Möndu hlutu Skúlaverðlaunin í ár en verðlaunin voru afhent á sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í byrjun mánaðarins. Verðlaunin eru veitt þeim hönnuði sem talinn er eiga besta nýja hlutinn á sýningunni og mega hlutirnir hvorki hafa verið til sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna.

"Fyrir jólin í fyrra bjó ég til standandi jólakort og sendi til viðskiptavina minna," segir Mandý, eins og hún er kölluð, en hún rekur umbúðasmiðjuna MMHönnun. "Nokkur kort lentu á Þjóðminjasafninu af því ég hafði unnið fyrir það. Vala Ólafsdóttir sem vinnur þar hringdi í mig og spurði hvort ég vildi ekki selja jólakortin. Þetta var bara kortér í jól og ég ætlaði ekki að fara út í sölu á þessu. Hún talaði mig til og ég fór með nokkur kort til hennar sem seldust svo upp. Ég fór með fleiri kort og þau seldust upp á hverjum degi fyrir jólin," segir Mandý og hlær.

Um síðustu jól notaði Mandý jólakortin sem pakkamerkispjöld á pakka sem hún gaf vinum og vandamönnum. Út frá því ákvað hún að hanna minni pakkamerkispjöldin sem hún hlaut verðlaunin fyrir. "Bæði kortin og merkispjöldin hafa framhaldslíf eða tvöfalt hlutverk því það er líka hægt að stilla þeim upp og nota sem jólaskraut. Jólakortin koma vel út ef þeim er raðað saman á borð eða í glugga og fallegt er að hengja litlu spjöldin á jólatréð."

Mandý segir umbúðir skipta miklu máli í framsetningu verslana og í markaðssetningu en fyrirtæki hennar hannar umbúðir fyrir bæði lítil og stór fyrirtæki. "Það hefur oft verið vandamál fyrir hönnuði og handverksfólk að finna umbúðir sem passa fyrir þeirra vöru. Ég sérhanna formið á umbúðunum svo það smellpassi," segir hún.

Jólakortin og pakkamerkispjöldin frá Mandý fást í helstu gjafa- og hönnunarverslunum bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×