Um 40% vilja ekki gefa líffæri úr látnum aðstandanda Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. nóvember 2012 14:18 Líffæraígræðsla.
Þótt rannsóknir bendi til þess að um 80-90% allra séu tilbúnir til þess að gefa úr sér líffæri við andlát, eru um 40% aðstandenda sem neita að gefa líffæri úr látnum aðstandanda. Þetta segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS. Sambandið hefur ýtt úr vör nýju kynningarátaki til þess að vekja athygli á mikilvægi líffæragjafar. „Það hafa verið gerðar kannanir bæði hérlendis og erlendis sem sýna að 80-90% allra eru tilbúnir til þess að gefa úr sér líffæri. En það sem veldur okkur áhyggjum er að tíðni neitunar af hálfu aðstandenda er í kringum 40% í gegnum tíðina. Þótt einhverjar vísbendingar séu um að hún fari lækkandi þá er hún alltof há og þetta er að kosta okkur mannlíf á ári hverju," segir Guðmundur. Guðmundur segist vilja laga þetta misræmi með því að vilji einstaklingsins verði uppi á borðinu og aðstandendur ekki skildir eftir með þessa erfiðu ákvörðun. Með átakinu vill SÍBS líka vekja athygli á þingsályktun sem Siv Friðleifsdóttir og fjölmargir aðrir þingmenn hafa lagt fram um ætlað samþykki við líffæragjafir. Það frumvarp gengur út á að samþykkið sé fyrir hendi nema að hinn látni hafi áður látið í ljós sérstaklega andstöðu.Hér má sjá fésbókarsíðu SÍBS, þar sem fjallað er um líffæragjafir.
Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Innlent Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Innlent Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Innlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Fleiri fréttir Grasrót kennara lætur til sín taka á samfélagsmiðlum Óttast afleiðingarnar ef kennarar fá mun meiri hækkun en aðrir Kynnti tveggja milljarða viðbótarstuðning við Úkraínu í Kænugarði Kristrún í Kænugarði og átök innan sveitarfélaganna Fimm hundruð tré felld og ákvörðunar beðið Jón undir feldi eins og Diljá Hafa bæði í hyggju að leiða flokkana sína í næstu kosningum Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Áslaug Arna og Guðrún tókust á í Pallborðinu Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Svefnlyfjaneysla barna og heimildarmynd um úkraínska flóttamenn Ekkert sem bendi til að konan hafi áttað sig á ölvun ökumannsins Reykjavík muni mögulega gera sérsamninga við kennara 20 til 30 ný störf verða til í Árborg með tilkomu nýs öryggisfangelsis Jens Garðar býður sig fram til varaformanns Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Sameining sveitarfélaga á Suðurnesjum og stórleikur í körfunni Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Reyndist vera eftirlýstur „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Stór skjálfti í Bárðarbungu Framkvæmd við heljarstórt hús geti orðið mikil lyftistöng Vilja breyta Landsbankanum í samfélagsbanka Sjá meira