Jólin

Heklað jólaskraut við Elliðavatn í dag

Tinna Þorvaldsdóttir Þórudóttir, hefur sérstaklega hannað heklað jólaskraut á Fjallaþininn.
Tinna Þorvaldsdóttir Þórudóttir, hefur sérstaklega hannað heklað jólaskraut á Fjallaþininn. Mynd / Valgarður Gíslason
Kveikt verður á jólatré jólamarkaðsins við Elliðavatn í dag klukkan þrjú. Skreyting jólatrésins er sérstaklega hönnuð og handgerð fyrir jólamarkaðinn við Elliðavatn 2012.

Hönnuðurinn, handverkskonan og metsöluhöfundurinn, Tinna Þorvaldsdóttir Þórudóttir, hefur sérstaklega hannað heklað jólaskraut á Fjallaþininn sem prýðir markaðstorg jólamarkaðs Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Á sama tíma flytur Ólöf Arnalds nokkur vel valinn lög í tilefni þess. í kjölfarið verður boðið upp á harmonikkuspil, kaffi, kakó og vöfflur.

Jólamarkaðurinn við Elliðavatn er opinn um helgar frá 11-16, þar er fjölbreyttur hópur handverksmanna og hönnuða ásamt jólatrjásölu skógræktarfélags Reykjavíkur.






×