Handbolti

Akureyri hafði betur gegn Aftureldingu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Andri Snær Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Akureyri í dag.
Andri Snær Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Akureyri í dag. Mynd/Vilhelm
Akureyri vann góðan útisigur á Aftureldingu í sextán liða úrslitum Símabikars karla í handknattleik í dag.

Gestirnir frá Akureyri leiddu með fimm mörkum í hálfleik 13-8 og héldu forystu sinni allt til loka. Úrslitin 20-25 gestunum í vil.

Jóhann Jóhannsson skoraði sex mörk fyrir heimamenn en Guðmundur Hólmar Helgason var markahæstur gestanna með átta mörk.

Fjórir leikir fara fram í sextán liða úrslitum á morgun. Hæst ber viðureign HK og FH í Digranesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×