Lífið

Völva 2013: Anna Mjöll skilur og Bó í bisness

Einn meðlimur hættir í Of Monsters and Men

Of Monsters and Men hefur gert góða hluti erlendis og verður ekkert lát á velgengni hljómsveitarinnar. Eftir heimsreisuna og aðra sigra sé ég stór tækifæri opnast hjá henni á árinu. Þar verða þó mannabreytingar seinni hluta ársins. Einn meðlimur fer út og annar bíður á línunni og tekur við.

Páll Óskar heldur á nýja braut

Páll Óskar Hjálmtýsson er að fara inn á glænýjar brautir. Hann á eftir að gefa út afraksturinn fyrir næstu jól. Þar er á ferðinni meistarastykkið hans. Páll Óskar mun einnig taka þátt í stórum tónleikum erlendis á árinu.

Sambandið hjá Önnu Mjöll endist ekki út árið

Anna Mjöll Ólafsdóttir verður ekki mikið í sviðsljósinu hér heima en í Ameríku er hún að verða nokkuð þekkt, aðallega fyrir "skilnaðarmálið". Hún er komin með nýjan elskhuga en ég efast um að það endist út árið. Í söngnum kemur hún með smell. Þar hittir hún í mark og kemst mjög ofarlega á vinsældalistann.

Friðrik Ómar í kreppu

Friðrik Ómar Hjörleifsson er í hálfgerðri kreppu á árinu. Það er eins og hann finni ekki rétta taktinn í lífinu. Hann heldur áfram að hafa sönginn sem aðalatvinnu en mér finnst hann ekki nógu hamingjusamur. Mikið verður rætt um ættleiðingu barns hjá honum á árinu en ég held að hann kjósi að bíða með það.

Bó stofnar fyrirtæki

Björgvin Halldórsson mun stofna fyrirtæki á árinu í kringum sig og tónlistina. Þar koma nokkuð margir að og á eftir að ganga vel hjá honum og hans fólki.

Diddú í poppið

Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir, fer í samstarf við aðila í dægurtónlistinni og gerir garðinn frægan þar.

Völva 2013: Eiður smári sest á skólabekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.