Körfubolti

Jón Arnór með sjö stig í tapi gegn botnliði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Anton
Jón Arnór Stefánsson skoraði sjö stig fyrir lið sitt CAI Zaragoza sem tapaði 79-70 gegn Lagun Aro í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöldi.

Jón Arnór spilaði í túmar 23 mínútur. Hann skoraði úr öðru þriggja stiga skota sinna en hitti aðeins úr einu af sex skotum sínum innan þriggja stiga línunnar. Bæði vítaskotin hans rötuðu niður.

CAI Zaragoza á í harðri baráttu um að hafna í einu af efstu átta sætunum þegar tímabilið verður hálfnað eða eftir sautján umerðir. Átta efstu liðin vinna sér þátttökurétt í Konungsbikarnum í febrúar.

CAI Zaragoza situr í 6. sæti en fjögur lið anda ofan í hálsmálið á liðinu með einum sigri minna. Ferðin til San Sebastian í gær gerði liðinu engan greiða í baráttunni um sæti í bikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×