Tæknirisinn Apple kynnti nýjustu spjaldtölvu sína í gær. Sérfræðingar segja að fyrirtækið verði að selja gríðarlegt magn af spjaldtölvunni til að halda síhækkandi markaðsvirði sínu áfram.
Tim Cook, forstjóri Apple, steig á stokk í San Francisco í gær og opinberaði spjaldtölvuna „iPad." Apple vonast til þess að háskerpuskjár og 5 megapixla myndavél ásamt talgreiningar hugbúnaði eigi eftir að sannfæra milljónir spjaldtölvu eigenda um að skipta yfir í nýju spjaldtölvuna.
iPad og iPad 2 hafa notið gríðarlegra vinsælda og eru vinsælustu vörur fyrirtækisins á eftir iPhone snjallsímanum. Á síðustu þremur mánuðum síðasta árs voru 15.4 milljón eintök af iPad seld.
„Apple verður sífellt að slá sölumet með vörum sínum," sagði Colin Gillis hjá greiningardeild BGC Partners í New York. „Væntingar markaðarins gera ráð fyrir því."
Apple verður að slá sölumet til að mæta kröfum markaðarins
