
Opið bréf til forseta ASÍ
Ég er einn þeirra sem tóku út séreignarsparnað til þess að mæta áföllum bankahrunsins. Það var gert með heimild sem núverandi stjórnvöld lögleiddu. Þessi úttekt á sparnaði var mitt tjón vegna glæframennsku, gáleysis og vanrækslu sem ég tel mig ekki bera sérstaka ábyrgð á. Ég átti einnig svolítinn sparnað hjá Allianz í gjaldeyri sem ég varð einnig að tæma vegna hækkunar á íbúða- og lífeyrissjóðslánum mínum.
Fyrir réttu ári höfðu landsmenn tekið út 60 milljarða króna af séreignarsparnaði til að mæta áföllunum.
Hækkun íbúða- og lífeyrissjóðslánanna voru um leið tekjur lífeyrissjóðs míns og viðskiptabanka í krafti verðtryggingarinnar. Möglunarlaust hef ég borið byrðar gliðnunar milli tekna og skulda líkt og tugþúsundir annarra samlanda minna. Stundum svolítið pirraður en sett undir mig hausinn. Seldi bíl, greiddi niður lán og ek nú um á gömlum jálki.
Þú veist eins vel og ég að auknar vaxtabætur léttu undir í þessu bankahrunsbasli undanfarinna ára. Og það get ég sagt þér Gylfi, að í stóra samhenginu vekur það góðar vonir og léttir lund að sjá að hagvöxtur er ágætur hér á landi, jöfnuður hefur aukist á ný og tekist hefur ágætlega að halda atvinnuleysi í skefjum. Þú veist þetta allt saman. Þú vilt sem forseti ASÍ taka þátt í að milda áföllin fyrir launamenn þessa lands. Ekki satt?
Ný tegund kjarabaráttu
En nú gengst þú fyrir því – og ASÍ – að höfða mál gegn stjórnvöldum. Vegna hvers? Jú, álagning tímabundins skatts á lífeyri í þágu launamanna og heimila vegna fjármálahrunsins þykir þér og lögfræðingi ASÍ vera brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ríkisstjórnin hafi ekki efnt loforð um að afnema tímabundnar kvaðir á lífeyrissjóðina og hafi jafnvel sett heimsmet í vanefndum.
Er þetta ný tegund af kjarabaráttu? Að reyna að fá ógilt lagaboð sem færir fé tímabundið úr lífeyrissjóðum í vasa launamanna og heimila í verðtryggðu öryggiskerfi lífeyrissjóðanna? Finnst þér kannski að ég eigi að fara í mál við einhvern vegna þess að ég neyddist til að taka út séreignarsparnað minn? Þú og lögfræðingur ASÍ megið endilega láta mig vita hverjum ég á að höfða mál gegn.
Að draga lappirnar
Ertu viss um það Gylfi að þú hafir að þessu sinni horft yfir allt sviðið? Þú kannast áreiðanlega við viljayfirlýsingu lífeyrissjóðanna, bankanna og ríkisstjórnarinnar frá því í desember 2010. Þar stendur að „ríkisstjórnin muni í samstarfi við aðila þessarar yfirlýsingar leita leiða til að fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir fjármagni nýja tegund tímabundinnar vaxtaniðurgreiðslu“. Þetta skyldi gerast í gegnum vaxtabótakerfið sem og var gert og var reiknað með 6 milljörðum króna á ári í tvö ár, 2011 og 2012. Í heildina var sem sagt gert ráð fyrir að lífeyrissjóðirnir létu samtals 6 milljarða króna af hendi rakna vegna skuldavanda heimilanna í sérstaka vaxtaniðurgreiðslu. Þessar greiðslur voru síðar lækkaðar. Bankarnir skyldu greiða tvisvar sinnum 2,1 milljarð króna en lífeyrissjóðirnir tvisvar sinnum 1,4 milljarða króna.
Skemmst er frá því að segja að bankarnir hafa staðið við sinn hluta en lífeyrissjóðirnir ekki eins og fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á Alþingi í gær. Þessar greiðslur voru síðar áréttaðar af löggjafarþinginu með lagasetningu sem þú hefur nú á hornum þér.
Að hugsa stórt eða smátt
Veist þú Gylfi hvernig lífeyrissjóðirnir höfðu hugsað sér að leggja fram 6 milljarða í þágu heimilanna úr því þeir með harmkvælum geta vart lagt fram nema 2,5 milljarða þegar upp er staðið?
Inn í þetta blönduðust svo gjaldeyrisútboð Seðlabankans með þeim hætti að lífeyrissjóðirnir skyldu njóta þess ef ríkið hagnaðist á þeim (lífeyrissjóðirnir eru stærstu kaupendurnir í útboðunum). Sá hagnaður kæmi til lækkunar á framlögum lífeyrissjóðanna til tímabundnu vaxtabótanna.
Ólíkt bönkunum hefur staðið í stappi, þjarki og þrefi við lífeyrissjóðina um framlögin til heimilanna og launamanna í gegnum vaxtabótakerfið. Þú kannast við þetta Gylfi. Þú kannast þá einnig við að fjármála- og efnahagsráðuneytið hafi boðið að síðari greiðslan yrði felld brott. Er það ekki? Málið dautt?
Nei, málshöfðun skal það vera á hendur stjórnvöldum og borið við brotum á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þar eð hætta sé á að framlög lífeyrissjóðanna skerði réttindi á almenna markaðnum en ekki hjá opinberum starfsmönnum. En staðfestu ekki lífeyrissjóðirnir sjálfir að þeir ætluðu að taka þátt í greiðslu sérstakra vaxtabóta í þágu launamanna og heimilanna í landinu? Var það ekki brot á jafnræðisreglu? Já, eru stjórnvöld ekki reiðubúin að ræða um þessar áhyggjur ykkar af jafnræðinu?
Má ég spyrja þig kurteislega Gylfi: Í þágu hverra yrði málshöfðun ASÍ í raun og veru?
Skoðun

Göngum í takt
skrifar

Hverju lofar þú?
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar

Það er vá fyrir dyrum - Börnin okkar
Svava Þ. Hjaltalín skrifar

Hvert er eðli innflutningtolla? – Hvað er Trump eiginlega að gera? - Hverjir munu líða mest?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar - Babýlonherleiðingin og örlög smáþjóða í átökum heimsvelda
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Fjölgun hjartasjúkdóma og aukið álag á spítalana í boði Carnivore bylgjunnar?
Guðrún Nanna Egilsdóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar

Allt að vinna, engu að tapa!
Helga Rakel Rafnsdóttir,Margrét M. Norðdahl skrifar

Fiskurinn í blokkunum
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar

Snýst núverandi staðsetning Reykjavíkurflugvallar um öryggi… eða mögulega eitthvað annað
Daði Rafnsson ,Kristján Vigfússon ,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar

Þegar vald óttast þekkingu
Halla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar

Með hjúkkuna upp í rúm og lækninn í vasanum
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Hverjir eiga Ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Komum náminu á Höfn í höfn
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Betra líf eftir greiningu krabbameins, tímamótarannsókn sem vísar veginn
Sigríður Gunnarsdóttir skrifar

Veiðigjöld vs afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamatsskyldu
Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar

Tollar – Fyrir hverja?
Valdimar Birgisson skrifar

Þau eru fá en þörfin er stór
Sif Huld Albertsdóttir skrifar

Samvinnufélög, valkostur í atvinnurekstri
Elín H. Jónsdóttir,Guðrún Johnsen skrifar

Leiðin til helvítis
Jón Pétur Zimsen skrifar

Eitruð kvenmennska
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Hinn nýi íslenski aðall
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Samningur HSÍ við Rapyd – Opið bréf til frambjóðenda í formannskjöri
Hópur stuðningsmanna Íslands í handbolta skrifar

Gjaldskrár munu ekki virka til að koma aftur framleiðslu af stað
Sæþór Randalsson skrifar

Mannúð og samvinna á tímum sögulegra þjáninga
Sólrún María Ólafsdóttir skrifar

Hvernig getum við notað nýjar ráðleggingar um mataræði?
Óla Kallý Magnúsdóttir,Jóhanna E. Torfadóttir skrifar

Þegar rykið hefur sest
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Búum til réttlátt lífeyriskerfi
Hrafn Magnússon skrifar

Á undan jarðýtu komi fornleifafræðingur…
Stefán Pálsson skrifar

Hin raunverulega byggðastefna
Jón Þór Kristjánsson skrifar

Sameining Garðabæjar og Hafnarfjarðar – kostir – ókostir - skynsemi
Ó. Ingi Tómasson skrifar