Lífið

Alveg skilin

Courteney Cox og David Arquette er löglega skilin.
Courteney Cox og David Arquette er löglega skilin. Nordicphotos/getty
David Arquette sótti löglega um skilnað frá eiginkonu sinni Courteney Cox í fyrradag. Í gögnunum segir Arquette ástæður skilnaðarins vera ósættanlegan ágreining. Sama dag og leikarinn sótti um skilnaðinn voru liðin þrettán ár frá giftingu þeirra en saman eiga þau átta ára dótturina Coco.

Cox og Arquette kynntust við tökur á kvikmyndinni Scream, sem kom út árið 1996. Orðrómur um skilnaðinn kviknaði fyrst í október árið 2010 þegar leikarinn var sakaður um framhjáhald. Hélt hann viltu líferni sínu áfram þar til hann endaði í meðferð í janúar 2011.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.