Innlent

Fleiri geitungar en voru í fyrra

geitungur á kókdós.
geitungur á kókdós.
Það sem af er sumri hafa meindýraeyðar Reykjavíkurborgar þurft að eyða mun fleiri geitungabúum en síðastliðin ár. Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, segir þó að nú sé geitungatímabilið rétt að hefjast svo að enn sé of snemmt að bera árin saman. „Þetta er þó vísbending um að þeim gæti verið að fjölga," segir hann.

Í júní voru meindýraeyðar kallaðir tíu sinnum á vettvang til að eyða búum en einungis sex sinnum í fyrra. - jse




Fleiri fréttir

Sjá meira


×