Nokia biðst afsökunar á auglýsingu 6. september 2012 14:03 Skjáskot úr auglýsingunni. mynd/Nokia
Raftækjaframleiðandinn Nokia hefur beðist afsökunar á því að hafa reynt að blekkja neytendur. Fyrirtækið gaf á dögunum út auglýsingu en því var haldið fram að hún hafi verið tekin upp á Lumia 920, nýjasta snjallsíma raftækjaframleiðandans. Það var tæknifréttasíðan The Verge sem vakti athygli á málinu. Á einum tímapunkti í auglýsingunni sést myndatökumaður halda á SLR myndbandsupptökuvél.Nokia hefur nú birt tilkynningu þar sem beðist er afsökunar á málinu. Málið þykir afar vandræðalegt fyrir finnska fyrirtækið enda hafa sérfræðingar lofað Lumia 920 snjallsímanum sem kynntur var í New York í gær. Síðustu ár hefur Nokia barist um hlutdeild á snjallsímamarkaðinum. Þannig hefur fyrirtækið háð erfiða baráttu við tæknirisana Apple og Samsung. Því miður virðast fjárfestar ekki vera vongóðir því hlutabréf Nokia féllu um átta prósent í gær og önnur sex í dag.
Mest lesið Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Viðskipti innlent Ísold ráðin markaðsstjóri Viðskipti innlent Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Viðskipti innlent Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Frá Bændasamtökunum til Samorku Viðskipti innlent Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira