Körfubolti

Öruggur sigur hjá Chelsea gegn Monterry

Juan Mata fagnar hér marki sínu í Japan í morgun.
Juan Mata fagnar hér marki sínu í Japan í morgun. Nordic Photos / Getty Images
Chelsea leikur til úrslita á heimsmeistaramóti félagsliða í knattspyrnu eftir 3-1 sigur gegn Monterrey frá Mexíkó í undanúrslitum. Evrópumeistaralið Chelsea mætir Corinthians frá Brasilíu í úrslitaleiknum sem fram fer á sunnudagsmorgun að íslenskum tíma.

Juan Mata skoraði fyrsta mark leiksins á 17. Mínútu, Fernando Torres bætti við marki á þeirri 46., og Chávez varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark á þeirri 48. De Nigris skoraði fyrir Monterrey rétt fyrir leikslok.

Chelsea var með yfirburði í leiknum og lagði Torres upp fyrsta mark leiksins áður en hann skoraði sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×