Lífið

Kristrún Ösp eignaðist dreng

Kristrún Ösp ásamt Dwight Yorke.
Kristrún Ösp ásamt Dwight Yorke.
Kristrún Ösp Barkardóttir fyrirsæta er búin að eignast lítinn dreng. Það vakti mikla athygli í ágúst síðastliðinn þegar Kristrún tilkynnti um það á Facebook að hún væri ólétt, en hún gaf ekkert uppi um faðerni barnsins.

Kristrún hefur vakið mikla athygli fyrir ástarsamband sitt við Dwight Yorke, fyrrverandi knattspyrnumann, og Svein Andra Sveinsson hæstaréttarlögmann.

Lífið óskar Kristrúnu Ösp til hamingju með frumburðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×