Viðskipti innlent

Gerði grein fyrir stjórnmálaáhættu

Vilhjálmur Egilsson var stjórnarformaður Gildis fram að síðasta aðalfundi, sem haldinn var í lok apríl. Hann er nú varamaður í stjórn sjóðsins.
Vilhjálmur Egilsson var stjórnarformaður Gildis fram að síðasta aðalfundi, sem haldinn var í lok apríl. Hann er nú varamaður í stjórn sjóðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gildi lífeyrissjóður gerir í fyrsta sinn grein fyrir stjórnmálaáhættu í skýringu með ársskýrslu sinni fyrir árið 2011. Skýrslan var kynnt á ársfundi sjóðsins 25. apríl síðastliðinn. Þar segir: „Íslenskir lífeyrissjóðir búa í dag við nokkra stjórnmálaáhættu og áhættu af breytingum á lögum og regluverki. Undanfarin ár hefur lagaumhverfi lífeyrissjóða verið nokkuð stöðugt, en það hefur breyst á síðustu misserum og í ljósi umfjöllunar um sjóðina á vettvangi stjórnmálanna gætu fleiri breytingar verið í farvatninu. Stjórn sjóðsins telur ástæðu til að vekja athygli á að breytingar á lögum og regluverki í kringum sjóðina geta haft áhrif á afkomu þeirra“.

Í ársskýrslunni er einnig minnst á umræður á vettvangi stjórnmála um víðtæka skattlagningu á myndun lífeyrisréttinda, meðal annars um að inngreiðslur í viðbótarlífeyrissparnað yrðu ekki lengur skattfrjálsar. Þá er sýnt fram á dæmi um breytingar þegar „lögum var breytt þegar gjaldeyrishöft voru sett á og ekki eygir í að þeim verði aflétt. Þau lög breyttu verulega möguleikum sjóðanna til fjárfestinga og áhættudreifingar. Þá var með lögum lagður sérstakur skattur á lífeyrissjóði. Til stendur að afnema hann að hluta eða öllu leyti háð því hvernig sjóðir taka þátt í sérstökum útboðum á eignum í íslenskum krónum fyrir erlendan gjaldeyri, en niðurstaða þessa er enn nokkuð óljós“.

- þsj






Fleiri fréttir

Sjá meira


×